Fjelag heilalausra

skrattlappa

18.12.2007 17:58:40 / grima

Já...

Alveg geta börnin verið óborganleg. Hún dóttir mín heimtaði nú um daginn eitthvað sem ég missti andlitið yfir. "Mamma, mig langar svo í klamidíu." Ha? hvað sagðiru?? "Klamidíur, mér finnast þær svo góðar..." Barnið átti við klementínur. Jesús minn, ég bað hana vinsamlegast að leggja á minnið hið snarasta hvað þetta heitir og minnast ekki á klamidíu aftur. "Hva, af hverju mamma, hvað er það??" Æi það er svona kynsjúkdómur. "Kynsjúkdómur? Hvað er kynsjúkdómur??" Úff og æ.

Ég er að reyna að komast í jólaskap en gengur bara ekki neitt. Fór í dag og keypti eina jólagjöf eða svo, fór heim svo aftur og skreið uppí rúm. Geri tilraun no. 2 á morgun til verzlunar. Er sko alveg hætt að vera spritthæna, nú er ég bara hæna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 14:56:10 / grima

annars var hann góður

Ég á ekki til orð yfir fréttinni í dag um hana Erlu sem fór til USA og var fangelsuð og handjárnuð á höndum, fótum og mitti!! Klikk klikk. Þetta ofsóknarbrjálæði og komið í út í öfgar og marga kílómetra út fyrir það, hann hlýtur að hafa horn og hala sá sem stjórnar landinu. Dáist að Erlu Ósk, hún er hetja.

 Stekkjastaur kom í nótt til byggða. Krakkarnir settu skóinn út í glugga og skrifuðu miða bæði tvö, Kormákur Máni skrifaði með vinstri því hann handleggsbrotnaði um daginn, datt ofan í grunn. Á miðanum hans stóð: getur þú gefið mér pening og gjöf (hann verður áreiðanlega bankastjóri þegar hann verður stór) og Steinrós Birta skrifaði: Elsku jólasveinn. Á meðan þú skrappst út (ég skrapp út í hálftíma og sagði þeim að hátta og bursta á meðan) sagði Máni s...orðið. Annars var hann góður. Hún er sumsé búin að uppgvötva þetta en setur samt skóinn út í glugga og þykist trúa, ekki vill hún eyðileggja fyrir bróður sínum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 00:39:04 / grima

veskan min

Við Beta fórum á uppskeruhátíð hestamanna á laugardaginn. Hún var yfirreddari, ég alveg glötuð sem reddari, reddaði sko ekki neinu. Beta keypti miða, allt í Mojito, sá um að fá barþjón bara fyrir okkur, klaka, lime, og meira að segja akstur á ballið. Þegar ég mætti til hennar var ég send heim med de samme, ekki nógu fín í gallapilsi. Svo ég brunaði aftur heim og fór í kjól sem sýndi meira en ég kosið hefði fyrir svona samkundu. En vá hvað var gaman að sjá allt fólkið sem ég þekki, svona alla vega síðan í gamla daga. Sumir bara könnuðust ekkert við mig, ekkert móðguð neitt, nei nei...... sum andlitin hafði ég ekki séð í mörg ár svo það er kannski skiljanlegt að ein aðalbyttanna skildi ekki þekkja mig. Ætla deffenettlí aftur næsta ár. Einhver smástrákur hoppaði bókstaflega í fangið á mér, allt í einu var ég með eitt stykki í bóndabeygju, ,, vá hvað þú ert sterk" og svo var hann aftur horfinn. Iss erðanú, ég var að drepast í bakinu í tvo daga, er sko ekkert sterk. Skamm þarna smástrákspungur. Beta og Bylgja Blinky voru í miklu stuði, alla vega lengst af, en kvöldið endaði miklu fyrr en ég vildi, assssskotans vesen.

Síðasta helgi var heldur verri, veskinu mínu var stolið með öllu sem í því var, þ.m.t. gsm-inum, make up, buddunni minni mulberry flottu með öllum kortum og peningum, debet og öku, leðurhönzkum, bíllyklum, húslyklum......öllu saman. Og ekkert fundist. Mátti nefninlega alveg við þessu eða þannig. Gaukur kom og skipti um skrá og tveimur dögum síðar gaf  hann mér nýjan gsm. Svo nú er hægt að hringja í mig eða senda sms, svo ég fái einhver númer tilbaka.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 23:03:33 / grima

svona lítil og nett kona eins og þú

Fór aftur til tannsa, hann er nú algjör dásemd. ,,Ótrúlegt hvað svona lítil og nett kona eins og þú ert með stóran munn, hann er svo stór að ég kem báðum höndunum upp þig í einu"!! Svo hló hann bara, ég átti hins vegar mjöööög erfitt með það, gapandi í stólnum, þótti þetta nú samt alveg bráðfyndið. Fann ekki fyrir neinu af því sem hann gerði og var ódeyfð. Ekki er allt búið enn, fer aftur eftir hálfan mánuð en kvíði því mjög lítið.

Var að horfa á CSI Miami, ojbarasta hvað þeir eru leiðinlegir, Horatio sýnir engin svipbrigði, aldrei og mætir aleinn á svæðið til að drepa vonda kallinn, svoooo aaaaaaamerískt og óraunverulegt.

Fór upp í hesthús í dag í ógeðslega viðbjóðslega veðrinu og fer aftur á morgun. Fæ að fara á bak um leið og veður leyfir. Var að hjálpa til við að lónsera ofboðslega flotta meri sem kom á hús í fyrradag, rosa fótaburður og eldfljót að læra.

Annað kvöld ætla ég með Siggu Liv sætu á tónleika á Gauknum, og ég hlakka svo til, hef ekki farið út í marga mánuði, halló, er að verða gjörsamlega biluð á því að fara aldrei neitt. Lúðvík hennar á afmæli í dag, fyrir átta árum var ég viðstödd fæðinguna, vá hvað er orðið langt síðan.  Á morgun, 2. nóv á Þorgerður Katrín afmæli hennar Kötu vinkonu, þriggja ára.

Fór í próf í síðustu viku í siðfræðinni, meðaleinkunnin var 5.5. Ég var hæst, fékkk 8.7. Ligga ligga ligga lá, er með sólheimabros hringinn, er svooo montin.

Jæja ég er farin út í óveðrið með hundana, oj barasta, best að klæða mig VEL


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 08:58:18 / grima

Garðurinn okkar er ekki klósett

Ég labba alla morgna og öll kvöld einn hring með hundana, já ég veit, voða dugleg. Ég fer yfirleitt sömu leiðina heim, meðfram sjónum og svo upp á götu. Eitt húsanna í þeirri götu var með skilti í garðinum í allt sumar og á því stóð stórum stöfum: ,,Garðurinn okkar er ekki klósett". Ég skil svo sem af hverju þetta er, í húsinu skáhallt á móti býr kall með tvo ljóta King Poodle hunda og þrífur aldrei upp eftir þá, ég hef séð til þeirra sleppa úr garðinum og kallinn á eftir þeim, þeir skíta á gangstéttina og hann tekur það ekki upp eftir þá. Fólk sko. Þeir hafa örugglega brugðið sér í garðinn með skiltinu og gert þarfir sínar þar enda kunna þeir ekki að lesa. Nær hefði verið fyrir fólkið að kvarta við kallinn sjálfan.

Annars langaði mig svo mikið til að segja fólkinu að mér fyndist þau hugrökk að setja upp skilti, að skrifa svona til minnis væri nú ekkert til að skammast sín fyrir, veit um fullt af fólki sem skrifar sjálfu sér minnismiða svo það gleymi ekki. Kannski á þetta fólk við svona gífurlegt minnisleysi að stríða og ruglast á garðinum og klósettinu.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:31:31 / grima

Tannlæknaferðin

var fín, mun skárri en ég bjóst við. Allan gærdaginn gat ég ekkert borðað, kveið svo fyrir ferðinni, er með svo mikla fóbíu. Gat heldur ekki drukkið kjark í mig, tók börnin með mér og ekki gott að vera óökufær... þurfti að halda andlitinu fyrir þau. Steinrós fór fyrst í stólinn, var með tvær skemmdir og lét laga aðra þeirra án deyfingar, rosa dugleg. Hetjan mín. Hin verður löguð næst. Kormákur Máni var ekki með neina skemmd en átti hins vegar mjög erfitt með að sitja kyrr, sérstaklega þegar hann var búinn, þá vildi hann fara strax heim. Mjööög óþolinmóður. Aðstoðarmaður tannlæknisins sem er silkiterrier með bláa slaufu, forðaði sér undan honum og faldi sig undir sófa á biðstofunni.  Tannlæknirinn var dásamlegur, hann sá hvað mér leið og lofaði að fara um mig mjúkum höndum, sem hann og gerði. Fyrst skoðaði hann og tilkynnti mér á afar varfærinn hátt að skemmdirnar væru dáldið margar, eða fimm. Svo ákvað hann að gera við þær tvær stærstu, setti á mig sólgleraugu og heyrnartól og spilaði tónlist, deyfði mig svo undurvarlega að ég fann ekkert fyrir því, ótrúlegur. Ég lá pinnstíf og hélt í hendina á sjálfri mér á meðan hann gerði við og x 2 stakk Steinrós höfðinu inn til að spyrja hvernig mér liði, úff hvað ég var fegin að geta ekki svarað. Tannlæknirinn skildi hinsvegar ekkert í því af hverju ég var ekki farin að kvarta undan þessum tveimur skemmdum, hann veit greinilega ekki að ég kann sko að þegja.....


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 11:51:22 / grima

tann...

Í meira en ár hef ég sloppið við að fara til tannlæknis en nú er víst komið að því. Hef fobíu á háu stigi, og það er ekkert að ástæðulausu. Frá því ég var þriggja ára mátti ég gjöra svo vel að fara á þriggja mánaða fresti og alltaf var ég með þrjár holur. ALLTAF. Og frá því ég var ellefu ára neitaði ég að láta deyfa mig. Oj bara, deyfingin er verst af öllu. Ég veit af minnsta kosti einni skemmd, og rennur sterklega í grun að þær séu fleiri, er nánast alveg viss. Og ég dey. Úti í Englandi kom Kim með mér, en nú þarf ég að fara með krakkana og má alls ekki sýna þeim að ég sé hrædd, ætla sko ekki að búa til fóbíu hjá þeim. Gangi mér vel. Á að mæta korter yfir fjögur og því borgar sig fyrir mig að byrja bara að drekka núna í hádeginu, ætti að vera orðin vel dofin og hress um fjögurleytið. Skál!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 11:33:46 / grima

ææ, greyið

Samkvæmt frétt á Vísi.is fær ,,gamli góði Villi" smávegis biðlaun. Greyið. kyssa á bágtið. hrmf...:

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, fær alls tæpar sjö milljónir króna í biðlaun eftir að hann lætur af embætti á morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Birgi Birni Sigurjónssyni, skrifstofustjóra starfsmannaskrifstofu Reykjavíkurborgar, miðast laun borgarstjóra við þau sem forsætisráðherra hefur og eru um 1,1 milljón á mánuði. Þessum kjörum mun Vilhjálmur halda næstu sex mánuðina, en fær ekki greidd borgarfulltrúalaun. Að sex mánuðum liðnum lækka laun hans og fær hann þá greitt eins og aðrir borgarfulltrúar.

Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður borgarstjóra, mun að öllum líkindum einnig láta af störfum á morgun. Hann er með um 700 þúsund krónur í laun á mánuði og heldur þeim í þrjá mánuði eftir starfslok. Hann fær því rétt rúmlega tvær milljónir króna í biðlaun.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 18:12:43 / grima

Tók gjald fyrir eftirlit með aflífuðum hundum

Þvílík ómenning!! á ekki til orð yfir yfirvöld og þetta hundahatur sem hér virðist ríkja. Kannski er það bara af þekkingarleysi en það er þá það sama og fordómar. hrmpf. http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1296783 

Tók gjald fyrir eftirlit með aflífuðum hundum

Það var að sjálfsögðu ekki nóg að framfylgja dauðarefsingunni fyrir að greiða ekki gjaldið, heldur þurfti að innheimta líka, og það fram í tímann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 20:42:54 / grima

sauða...

Æ hvað mig langar eitthvað út, komin helgi aftur og aldrei fer maður neitt. Steinrós kom með mér í Nóatún í gær, og inni í miðri búðinni sagðist hún vilja SAUÐAsultu. Ha? hváði ég, ha? Sauðasultu, mér finnst hún svo góð. Ertu að meina sviðasultu?? Æi mamma það heitir sauðasulta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 20:56:10 / grima

Dónabrandari ungdómsins

Hún dóttir mín sagði mér brandara, sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún er bara níu ára, reyndar níu og hálfs, og þetta er DÓNABRANDARI....

,,Sko, mamma, þú veist svona dónaorð sem er búið að krota á veggi út um allt, svona viltu ríða og svoleiðis....ha?" Ég kinkaði kolli gapandi hissa og glápti á hana, trúði varla að hún hefði sagt þetta orð, ríða. ,,Ja, skooo, það var einu sinni strákur sem sá svona skrifað á vegg, viltu ríða og svo símanúmer. Og hann var svo forvitinn að hann hringdi í númerið...... og þá var svarað: Reiðskóli Reykjavíkur, góðan dag!"


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 03:30:19 / grima

hnuss

Það má nú ekki taka því sem svo að ég hafi verið að setja út á hann afa, alls alls ekki.

Mig langaði svo mikið út á skrall í kvöld en nei, það var víst ekki í  boði,  hef ekki pössun. Mikið eru fyndnir morgunþættirnir á FM95.7 á morgnana þeir eru óborganlegir. Bjarga mér. Zúber. Afi hringdi í mig  núna í vikunni og ég spurði hann hvort hann væri búinn að jafna sig eftir afmælisveisluna. Það hnussaði í honum, sagðist sko ekki hafa verið neitt þreittur.

jæja ég er farin að sofa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 12:35:20 / grima

Týndur neðri gómur

Það var gaman að hitta afa á 99 ára afmælisdaginn, að visu var hann orðinn dauðþreyttur á öllum myndatökunum, sagðist vera orðinn afmyndaður. Hann sér orðið illa en það á víst að senda hann í aðgerð til að taka eitthvað ský frá öðru auganu. Það má hins vegar ekki minnast á það við hann, segir að það taki því nú ekki. Reyndar sagði hann það líka þegar átti að smíða upp í hann  nýjar tennur þegar hann var 85 ára. Þá var hann búinn að vera án neðri góms síðan hann var um sextugt, en neðri gómnum týndi hann einhvern tímann hjá einhverri kellingu og vildi alls ekki sækja hann. Svo hann sleppti því  bara að hafa ekki neðri góminn í 25 ár, gat að sjálfsögðu lítið tuggið, japlaði bara á matnum og kyngdi svo. Hann bjó lengi vel heima hjá mömmu og pabba og við matarborðið las hann blaðið. Eitt sinn var mamma eitthvað þreytt á þessu og bætti á diskinn hans í hvert sinn sem karlinn las og sá ekki á diskinn. Alltaf var afi jafn hissa þegar hann leit á diskinn, nú ég hélt ég væri búinn! svo át hann og las áfram, og enn bætti mamma við. Á endanum var hann búinn að torga fimmtán kjötbollum og níu kartöflum. Bróðir mömmu var líka í mat og átti í mestu erfiðleikum með að skella ekki uppúr.

Pabba tókst loks að fá hann til að fara og fá nýjar tennur þegar hann var 85 ára vegna þess að ein tönnin í efri góm hvarf. Og síðan þá hefur hann getað tuggið matinn sinn. Ég setti inn fullt af myndum úr afmælisveislunni inn á dýraland, slóðin er: http://www.dyraland.is/dyr/23270 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 22:55:32 / grima

afi níutíuogníuára

Hann afi er merkilegasti maður sem ég þekki. Á morgun er hann 99ára og í gær heimsótti ég hann með krökkunum. Hann er alveg með fulle fem og man ótrúlegstu vísur og sögur, bæði sem hann hefur lesið og svo auðvitað þær sem hann hefur upplifað, t.d. frostaveturinn mikla 1918, þá var hann tíu ára. Kisubarnið hans afa síns kallar hann mig, kettir eru það fallegasta sem hann veit. Þegar mamma hitti hann fyrst, þá sautján ára, bjó hann í hálffokheldu húsinu á Kársnesbrautinni sem hann og pabbi höfðu byggt af vanefnum. Rússaperur héngu í loftinu og afi svaf í götóttum svefnpoka á gólfinu, kolsvartar lappirnar stóðu út úr pokanum. Í stofunni voru kojur og þar sváfu kettirnir, allir þrettán. Stór sandhrúga á gólfinu var klósettið þeirra og til skemmtunar hafði afi eina lifandi mús í krukku fyrir þá að horfa á. Afi býr nú hjá "dóttur" sinni sem ég stórefa að sé rétt, svei mér þá. Það þótti ekkert tiltökumál að hlýja sér aðeins hérna áður fyrr...hóst.... nóg um það. Á morgun ætla ég að mæta í afmælið til hans með neftóbak, brenni og bjór. Uppáhald afa.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:02:32 / grima

Miðfingur

Hann son minn sex ára langar að fara æfa fótbolta. Þegar hann var spurður með hvaða liði hann myndi vilja fara æfa svaraði hann: Bara Man united eða Liverpool eða eitthvað....

 Steinrós Birta er afar hneyksluð á orðbragði jafnaldra sinna í skólanum, segir þau "ótrúlega dóna" og hún hafi það ekki eftir þeim sem þau segja, en gat þess að þau segðu m.a. Fuck sem væri sko ljótasta orðið í íslensku.....var fljót að benda henni á að það er enska...haha. Hún var jafnframt miður sín yfir því að einn bekkjarbróðir Mána skyldi sýna henni og vinkonu hennar miðfingurinn, hún var úti að labba með hundana og "það lá við að ég þyfti að halda fyrir augun á henni Dimmu-Limm!"

Rosalega er ég ánægð að nú skuli vera loksins kominn föstudagur og í kvöld verður sko kósíkvöld með krökkunum, leigjum DVD og liggjum í leti. Poppát eins og okkur sé borgað fyrir það.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagsetning
8. febrúar 2012
Merkilegt